Árgangur '87
03.12.2008 00:25:25 / siglo87

21 dagur til jóla :)

Jæjha..

Ég geri ráð fyrir að allir séu byrjaðir í prófum (þeir sem eru í skóla), gangi ykkur vel.. ég sjálf er búin með 1 af 4.. verð búin 10 des :)

Það sem ég var að spá í hvort að við ættum ekki að reyna að hittast eitthvað yfir hátíðarnar... eins og við gerðum í fyrra?? - í fyrra var það Palli.. verður Palli aftur núna ?? Væri ekki kannski sniðugt að hittast aðeins fyrr í ár???.. ææji.. Ég kem s.s. norður laugardaginn 20 des og fer aftur í bæinn snemma 26. des.. Það væri gaman að hittast einhverntíman þá, annars er bara æðislegt ef að þið getið hisst sem flest þó svo að ég verði ekki með í þetta sinn :(

Annars vildi ég bara henda inn einu bloggi hérna þar sem seinasta er síðan í September..

Endilega skrifið í skoðun hvað ykkur hentar best og hvort þið nennið að hittast :)

Kv. Sirrý :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 15:36:30 / hrafnhildur

Afmæli!!

Til hamingju með afmælið Kristrún Erla! :)

Kv. Hrafnhildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 08:32:27 / siglo87

Hittingur næstu helgi!

Jæja krúttin mín, það verður jú hittingur næstu helgi, þ.e.a.s 11.-13. júlí

Við byrjum á því að eyða deginum saman, erum búnar að fá leyfi til að vera uppí í gagga þar sem við vonandi getum horft á einhver mega-hallærisleg myndbönd af okkur, svo erum við búnar að panta pizzupartý á Bíóinu auk þess sem við verðum með Suðurgötu 10 þetta kvöldið! ..Ég er að tala um laugardaginn - B I G  P A R T Y ! :haha:

Annars væri líka fínt að vita hverjir ætla að koma og hverjir ekki, það er þá hægt að sirka út hvað þarf t.d pizzur fyrir marga og svona.

..Hlakka til að sjá ykkur öll! :lol:

» 15 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 17:08:26 / siglo87

Jæjha stelpur mínar...

Hvernig er það.. er búið að staðfesta á hittingurinn verði þar næstu helgi? og ef svo er, af hverju er þá ekki búið að senda út sms, eða koma með tilkynningu hér á síðunni.. því að fólk þyrfti að fara að redda sér frí í vinnu ef að þannig stendur á.. og svo líka soltið vont ef að einhverjir eru búnir að redda sér fríi og svo verður bara engin hittingur..

Ég er ekkert að reyna að vera leiðinleg.. vildi bara fá þetta á hreint..

Annars er ég buin að fá frí í vinnunni þar næstu helgi (11-13 júlí) og stefni á að koma á hitting þá ;)

Kv. Sirrý




» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 18:00:41 / lindabjork

Myndir !!!

Jæja loksins !!!!
er búin að skanna inn nokkrar gamlar myndir & er að henda þeim inn á síðuna ;)

K.v Linda


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 08:49:27 / siglo87

Til hamingju :*

Já elskurnar mínar, við erum orðin gömul því í dag eru SJÖ ár síðan við fermdumst !

Til hamingju með daginn :haha:

( ég á engar fermingarmyndir, þannig ef einhver á þá má hann endilega skella þeim á bloggið ;) )

Næsta mál á dagskrá..
Hittingurinn! Held að flest allir kjósi helgina 11.-13. júlí? þannig allir að taka frá þessa helgi :D hittingurinn verður þá laugardagurinn 12. júlí! og ætlum við að reyna að hafa program allann daginn.
Við kristrún erum svona komnar með smá mynd á þetta, en það fer allt eftir veðri hvað við getum gert. Við vorum að spá hvort það væri áhugi fyrir því að borga smá upphæð ( plús mínus 5000 ) fyrir smá leyndó? lofa að þetta verði skemmtilegt ;) ( verð fer eftir fjölda )

Svo var það annað. Við höfum ekki náð á alla, þannig að ég ætla að biðja ykkur ef þið eruð í sambandi við gamla bekkjafélaga að láta þau vita.

Jæja látið svo heyra í ykkur, og endilega ef þið hafið einhverjar hugmyndir eða skoðanir að láta vita.

Kveðja Hanna.
    




» 11 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 19:11:13 / heidarut

Lítil prinsessa fædd !


Klukkan 16:22 í dag þá kom prinsessan hans Arons okkar í heiminn og var hún 52 cm og 14 merkur. Stór og stæðileg stúlka.
Fyrir hönd árgangsins óska ég þeim Aroni og Særúnu innilega til hamingju með þetta.
Og þar með sagt er Aron 3. úr árgangnum til að verða foreldri. Spurning hver verður næstur í röðinni ;)

Kv. Heiða Sveinsdóttir

p.s. vill minna á færsluna hérna fyrir neðan fyrir þá sem eru ekki búnir að skoða og skrifa athugasemdir á hana.


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 12:49:43 / siglo87

Hvenær eigum við að hittast??

Jæja elskurnar,
Við höfum aðeins verið að velta þessu fyrir okkur... og við vorum að spá hvort að það væri ekki bara sniðugt að negla niður tvær dagsetningar og svo myndum við bara velja þá helgi sem fleiri komast.
Við vorum að hugsa um helgarnar 11.-13. júlí eða 15.-17. ágúst af því það eru svo margir uppteknir í júní.
Allir að segja sína skoðun :)

Kristrún og Hanna

» 25 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 18:25:47 / heidarut

Dauðara en dautt !!

Jæjja krakkar, veit nú ekki hversu margir skoða þessa síðu reglulega. En þið sem gerir það látið boðin berast og reynum að kveikja smá líf hérna :)
Reyna að sameina gamla '87 árganginn.
Það væri líka fínt að fá hugmyndir hjá ykkur hvenær þið eruð til í einhvern alvöru hitting, s.s hvernær þið sjáið ykkur fært að fá frí í vinnu og pössun og annað.
Og einnig væri fínt ef að einhver myndi sína einskært frumkvæði og taka það að sér að finna stað og stund fyrir okkur ;)
Reyna þá að fá sem flesta til að mæta svo það verði nú eitthvað fútt í þessu.

Kveðja
Heiða Sveins

P.s. Það er búið að upplýsa að litli bumbubúinn þeirra Arons og Særúnar er lítil prinsessa. Innilega til hamingju með það.


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 14:32:01 / hrafnhildur

Já einmitt

Vitiði..þessi síða er algjörlega dauð en ég ákvað að gera e-ð í því og langaði bara að spyrja ykkur hvað þið eruð að brasa þessa dagana? :)

 

Skylda að kommenta!!

 

Kv. Hrafnhildur  


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 09:31:23 / anita

BABY!

Sandra og Einar kærastinn hennar eru búin að eignast lítill strák!

Ég ætla fyrir hönd árgangsins að óska þeim innilega til hamingju.. :)

 

Anita

P.S ég setti inn tengla á myndasíðuna mína og myndasíðuna Hönnu, þar eru myndir frá Palla!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:17:01 / siglo87

Myndir

hæhæ..

 

Við erum komin með nýja myndasíðu afþví að það þarf víst að borga fyrir hina..

 

hún er http://picasaweb.google.co.uk/siglo1987

 

Var að setja inn myndir frá hittingnum og palla.. 

 

Svo getið þið sem tókuð líka myndir sett inná ;)

 

Kv. Sirrý 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:18:02 / siglo87

30 des

Hæhæ sæta fólk ;)

 

Hittingurinn 30 des verður heima hjá mér..  ;)

 

Ég og Hanna vorum að spá hvort að það væri ekki sniðugt að hver og einn myndi borga eitthvað smotterí og við myndum hafa bollu eða einhverjar léttar veitingar?? - eða viljið þið bara koma með ykkar eigin bjór ??

 

Kv. Sirrý 


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 17:46:06 / lindabjork

Afmæli !!!

TIL HAMINGJU MEÐ TVÍTUGS AFMÆLIÐ ÁSTRÓS !!!!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 03:58:22 / siglo87

30 des??

Góða kvöldið..

Það kom einhver með uppástungu að það yrði smá míníhittingur fyrir palla 30 des.. hverjir eru game ?? - getur jafnvel verið fyrirparty heima hjá mér.. þarf bara aðeins að ræða við gamla settið !

Veit að Anítu lýst ekkert á þá dagsetningu.. eru fleiri sem komast ekki ??

Kv. Sirrý


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill